Sælar!! Er búinn að vera í smá fríi frá
þessu blogg rugli enn ég lofaði sjálfum mér því að skrifa
eitthvað þegar við félagarnir gerðum eitthvað skemmtilegt
saman og hefur ýmislegt skeð síðan é ritaði seinast þannig að
maður stikklar á stóru að þessu sinni.
1. Steggjun Valda Hauks. Þetta er fyrsta steggjun sem ég hef
tekið þátt í og má segja að ég hafi ekki byrjað rólegri
kanntinum!!...við vorum að ég held 10 náungar sem tókum Valda í
"bakaríið" (hehe get it?) Fyrst var það Zorb - kúlan niður 200m
brekku og svo sápurenningurinn þar sem Kalli var aðal maðurinn því
að hann var á "hvíta risanum" eins og hann kallaði það. Svo var
farið með kallinn í gegnum bílaþvottastöð svon aðeins til að skola
af honum og svo beint á Smáralindina á G - strengnum þar sem hann
átti að spila fyrir gesti og gangandi. Eftir það var haldið í
bústað þar sem við áttum ógleymanlegar stundir saman og fer ég
ekkert nánar út í það.
2. Sumarbústaðferð bene hópsins. Þetta er í fyrsta skipti sem
við félagarnir gerum þetta enn ábyggilega ekki það síðasta. Hlelli
P, Sævar, Danni, Haffi, Gunni og Stebbi F mættu á föstudegi á áttu
magnað djamm það kvöld að eigin sögn enn við trúum því að
sjálfsögðu ekki því að hin öskradi partý - ljón.... Snake, Stebbi
T, Hlynur F og Nonni mættu ekki fyrr en á laugardeginum!! En það
kvöld má segja var eitt mitt skemmtilegasta því að við byrjuðum að
horfa á Vinir 2004 videoið sem Hlynsi bróðir gerði um okkur
félagana og er í einu orði sagt alvegótrúlegamagnaðhelvíti ......og
eftir það var ekki aftur snúið og kofinn var rokkaður til 6 um
morguninn!!!
3. Gifting Valda og Fanney. Já hann Valdi bauð okkur karlmönnum
fyrst í brunch í hádeginu á heitasta degi sumars hingar til og var
það mjög cool....samlokur, bakkelsi og bjór.....my kind of bruch!!
ég át að sjálfsögðu mest og allir strákarnir gerðu grín að feita
vaxtarræktar tröllinu....það voru samt ekkert nnað enn heljarmenni
á staðnum og kanski Jói Fel sá horaðasti.....hann sagði samt við
Snákinn "I´ll be back" gæinn greinilega á leiðina aftur í
ræktina....jájá koddu bara Jói minn ..... Um fimm leitið var haldið
í kirjuna og þar fór Valdi á kostum þar sem hann skrifaði " heppin
hún " undir skóna og allir sprúngu úr hlátri. Í veislunni áttum við
félagarnir að sjálfsögðu besta skemmtiatriðið þar sem við sýndum
videó sem Hlynur Bró hafði búið til um Valda og sló það rækilega í
gegn. Draupnir eða hvað sem þessi maður heitir átti næst besta
hehehe right!!
Lengi má halda áfram enn ég var nú einnig að koma úr 5 daga
sleppitúr um austurlandið stórbrottna og var það ótrúlega gaman og
má ég helst þakka honum pabba mínum fyrir frábæra hesta og
félagsskap og einnig Ödda T fyrir 2 ógleymanlegar nætur saman, Axel
fyrir gin-tussurnar og síðast en ekki síst Stebba T, Daða Þorsteins
eða DT, Ingibjörgu og Söru fyrir góðann félagsskap.
p.s. ef einhver segir að ég sé væminn aumingi þá lem ég ykkur
eftir nokkra daga!!
K.v. Snake